Peptide Prep Detox Shampoo

8.990 kr. 7.192 kr.

Hvernig virkar peptide prep detox sjampó?
Sjampóið djúphreinsar hár og hársvörð.
Strax eftir fyrsta þvott hefur sjampóið fjarlægt óhreinindi á borð við olíu og málma sem geta safnast upp í hárinu. Þá er átt við 99% af build up, 95% af óþarfa olíu og 76% af kopar.

Ryður brautina: Rannsóknir hafa sýnt að allar meðferðir heppnast betur í hreinu hári. Þar með taldar litameðferðir ásamt keratín, permanent, styrkingar og næringarmeðferðum. Sama er með mótunarvörur. Sjampóið undirbýr hárið fyrir hámarksvirkni K18 maskans.

Leggur grunn að heilbrigðu hári: Formúlan hreinsar hárið á áhrifaríkan hátt meðal annars í vatni sem hefur hátt steinefnainnihald. Sjampóið tæklar algenga málma s.s nickel, cadium, lead, zinc og járn og skilar þannig hárinu hreinu án þess að valda óþægindum í hári og hársverði.

Hvers vegna virkar sjampóið?
Formúlan inniheldur efni sem eru innblásin af húðumhirðu og
hreinsa þannig hárið án þess að þurrka það eða hafa áhrif á fyrrum litameðferð.
Í formúlunni eru 17 innihaldsefni auk K18 peptíðsins. Aktívt kol
(charcoal) dregur í sig skaðleg efni, óþarfa olíur og óhreinindi sem kunna að vera í hári og hársverði.
Salisýlsýra hreinsar olíu sem hefur byggst upp í hársekkjunum
(follicles) án þess að hárið missi nauðsynlegar olíur og lípíð (lipids).
K18 peptíð dregur úr því að hárið tapi próteini í þvotti og heldur
hárinu mjúku, sterku, heilbrigðu og hreinu.

Hvernig á að nota?
Djúhreinsisjampó sem er notað milli venjulegra hárþvotta.

1. Skiptið út fyrir venjuleg sjampó til djúphreinsunar einu sinni í
viku eða eins og þörf er fyrir.
2. Nuddið vel hár og hársvörð.
3. Skolið vel.
4. Endurtakið eftir þörfum.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar.

Vertu fyrsti aðilinn til að gefa umsögn fyrir “Peptide Prep Detox Shampoo”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *